Sumarfríið búið og ég byrjuð að vinna. Þetta hefur verið gott
sumar. Við fluttum inn þann 8.águst. fengum afhent kvölið
07.07.07 og svo mættum við galvösk morguninn eftir. Guðrún 'Ol.
vinkona mín,Örvar,Elva, Þóra, Raggi og Iðunn. Gefjun passaði Sörla.
Við hin máluðum húsið og vorum búin að mála allt kl.15:00. Þá
bónaði Þóra meirihlutann. Svo var flutt inn og um kvöldið var allt
fallið í ró.
Þá tók við að flytja Elvu og Ragga á Austurgötuna. Svo var að
skella sér í ferðalög á húsbílnum. Renndum austur á Hornafjörð og
hittum Birnu frænku og hennar fólk. Það fór vel um okkur öll
sjö í bílnum. Krakkarnir höfðu að vísu kúlutjald sem
annexíu.
Svo tókum við frænkurnar Erla og ég okkur saman og hjálpuðum
Sissu og Stefáni við að tæma íbúðina í Gullsmáranum. Það var ekki
auðvelt verk að pakka samn aleigu og öllu lífi gamallar konu og
ganga þannig frá að ræstinagarfólk geti gert tóma íbúð hreina.
Svona eins og að stroka all út. Búið.
Svo duttum við niður á ferð til Parísar! Tveir fyrir einn á
19.200ískr. Við skelltum okkur og höfum verið þar að slappa af og
hafa það gott í viku og komum heim þann 12. Missti sem sagt
enn og aftur af Gleðigöngunni miklu!
Sumarið 07 í stuttu máli.